Strandgata 45 , 600 Akureyri
72.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
161 m2
72.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1914
Brunabótamat
59.450.000
Fasteignamat
53.700.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Strandgata 45. Akureyri. Sjarmerandi 4 herbergja 161.5 fm. íbúð í fjórbýlishúsi á góðum stað miðsvæðis á Akureyri stutt frá miðbænum.
Búið er að endurnýja alla íbúðina á afar smekklegan hátt.


Allt er endurnýjað í íbúðinni 2021 og aðeins stiginn upp á efri hæð er upprunalegur inn í íbúðinni en þó er búið að lakka hann og teppaleggja.
Á aðalhæð íbúðarinnar er forstofa, eldhús, borðstofa, stofa, hol og gestasnyrting.
Á efri hæðinni eru þrjú svefnherbergi og stórt baðherbergi. Í kjallara er rúmgóð geymsla.
Á öllum gólfum er harðparket að undanskyldum baðherbergjum og forstofu.

Aðalhæð:
Forstofa Björt og rúmgóð, hiti er í gólfi.
Eldhús Svört innrétting, eldhúseyja, ofn, spanhelluborð, innbygður ísskápur og innbyggð uppþvottavél, flísar eru á eldhúsvegg að hluta.
Borðstofa/stofa eru samliggjandi og gluggar til suðurs með sérstaklega fallegu útsýni yfir „Pollinn“.
Snyrting er einnig á hæðinni, þar er upphengt salerni, lítil innrétting með handlaug og flísar á gólfi.

Efri hæð stiginn upp á efri hæðina er lakkaður og  teppi á þrepum.

Baðherbergið er mjög rúmgott flísalagt í hólf og gólf með sturtu og hvítri innréttingu, þar er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergin eru þrjú, í tveimur stærri herbergjunum eru fastir hvítir skápar. Mikið og fallegt útsýni er yfir Pollin.

Kjallari
Rúmgóð geymsla er í kjallara.

Annað:
- Falleg íbúð með frábæru útsýni yfir Pollinn
- Örstutt í miðbæ Akureyrar.
- Allar innréttingar, gólfefni og innihurðar 2021.
- Þak endurnýjað 2021.
- Rafmagn og raflagnir nýjar 2021
- Ofnar og ofnalagnir nýjar. 2021
- Neysluvatnslagnir nýjar.
- Gler endurnýjað og hluta af gluggum nýjir.
- Ný hurð í geymslu.

Nánari upplýsingar:
Sigurpáll Árni á [email protected] eða 696-1006.
Helgi Steinar á [email protected] eða 666-0999.
Sigurbjörg á [email protected] eða 864-0054.


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.