Kasa fasteignir - 461-2010
Bárugata 9 - Dalvík. Vel skipulagt 5 herbergja 197,1 fm einbýlishús á tveim hæðum með stakstæðum bílskúr og stórri lóð á góðum stað á Dalvík.
Efrihæð skiptist í forstofu, hol, stóra stofu, eldhús, búr, baðherbergi og tvö svefnherbergi.
Neðrihæð skiptist í forstofu, þvottahús, geymslu, gang, tvö svefnherbergi og salerni.
EfrihæðForstofa: Flísar á gólfi og opið fatahengi.
Hol og gangur: Parket á gólfi.
Stofa: Stórt bjart rými, nýtist sem borðstofa, setustofa og sjóvarpsstofa. Parket á gólfum.
Eldhús: Gömul innrétting með efri og neðriskápum. Pláss fyrir uppþvottavél í innréttingu. Sambyggð eldavél og bakaraofn. Dúkur á gólfi.
Búr: Er inn af eldhúsi, þar eru hillur og dúkur á gólfum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi upp upp hálfa veggi. Nýleg innrétting með vaski. Baðkar með sturtutækjum og hengi. Salerni. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Svefnherbergi: Eru tvö á hæðinni, bæði með fataskápum og parketi á gólfi.
NeðrihæðStigi: Stigi á milli hæða er teppalagður.
Forstofa: Flísalagður stigi er niður í þvottahús.
Þvottahús: Lakkað gólf. Tengi fyrir þvottavél.
Gangur: Teppi er á gangi og þar er stór fataskápur.
Herbergi: Eru tvö á hæðinni, bæði með parketi á gólfi og fataskápur í öðru þeirra.
Geymsla: Stór geymsla.
Salerni: Rými er á neðirhæðinni sem áður var salerni. Rýmið þarfnast uppgerðar svo það verði nothæft sem slíkt aftur. Með kaupunum fylgir nýtt klósett í rýmið.
Bílskúr er 36 fm með lökkuðu gólfi. Bílskúrshurð er ekki rafdrifin. Gönguhurð er til hliðar við bílskúrshurð. Kynding í skúrnum er frá affalli af íbúðarhúsi.
- Nýjir gluggar á neðrihæð.
- Nýlegar útidyrahurðir.
- Ljósleiðari.
- Stór garður.
- Húsið drenað fyrir 5 árum.
- Með húsinu fylgja nýjar þakrennur og bárujárn til að framlengja þakkannt.
Nánari upplýsingar veita:Helgi Steinar á
[email protected] eða í síma 666-0999.
Sigurpáll á
[email protected] eða í síma 696-1006.
Sibba á
[email protected] eða í síma 864-0054.