Hlíðargata 10, 600 Akureyri
59.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Tvíbýli
4 herb.
82 m2
59.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1944
Brunabótamat
40.491.000
Fasteignamat
40.600.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Hlíðargata 10 neðrihæð. Glæsileg nýlega uppgerð 4 herbergja 82,3 fm íbúð á neðri hæð í tvíbýli. Eignin er staðsett rétt ofan við miðbæ Akureyrar og er laus til afhendingar við kaupsamning.

Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, eldhús, stofu, gang, baðherbergi og 3 svefnherbergi ásamt tveim geymslum í kjallara.
Einnig er stórt sameiginlegt þvottahús/geymslurými sem er ekki inn í fermetra tölu.


Forstofa: Þar eru gráleitar flísar á gólfum.
Þvottahús: Er undir stiga upp á efrihæðina, þar eru flísar á gólfum, allt frárennsli er nýlegt.
Eldhús: Hvít nýleg sérsmíðuð innrétting, sama efni er í borðplötu og plötu á milli skápa. Nýtt helluborð og bakaraofn. Nýtt parket er á gólfum.
Ný uppþvottavél og ísskápur fylgja með í kaupum.
Stofa: Bjart og gott rými með nýju parketi á gólfum.
Baðherbergi: Allt endurnýjað, flisar á gólfum og sturtu frá Vídd, upphengt salerni, lítil skúffuinnrétting og skápur með spegli.
Svefnherbergi: Eru þrjú, öll með parketi á gólfum, tvö minni barnaherbergi og rúmgott hjónaherbergi.
Geymsla: Tvær sérgeymslur eru í kjallara eignarinnar, önnur með sér inngangi. Einnig er sameiginlegt rúmgott þvottahúsrými.

Árið 2023 var eftirfarandi endurnýjað:
- Hiti settur í öllu gólf.
- Íbúðin var heilspörsluð og máluð.
- Dregið var nýtt rafmagn auk tenglar og rofar.
- Skipt um allar vatnslagnir og frárennsli.
- Allar innihurðar nýjar.
- Allt nýtt í eldhúsi, innrétting og tæki. Ný uppþvottavél og ísskápur fylgja með í kaupum.
- Baðherbergi allt endurnýjað, flísalagt.
- Skipt um gler að hluta, annað gler var áður endurnýjað.
- Búið er að greiða fyrir ljósleiðara inn.

- Frábær staðsetning rétt ofan við miðbæ Akureyrar.
- Hentar afar vel í skammtímaleigu.
- Gróinn garður bak við hús.
- Möguleiki er að kaupa megnið af innbúi við sölu.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.