Dalsgerði 7

600 Akureyri
2
1
3
86 m²
60.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
  • Stærð 86 fm
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1976
  • Brunabótamat 40.800.000
  • Fasteignamat 49.400.000
Opið hús: 10. mars 2026 kl. 16:15 til 16:45.

Opið hús: Dalsgerði 7 E, 600 Akureyri. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 10. mars 2026 milli kl. 16:15 og kl. 16:45.

Kasa fasteignir 461-2010.

Dalsgerði 7E - Vel skipulögð og mikið endurnýjuð 86,9 fm, 3 herbergja enda íbúð á jarðhæð í tveggja hæða fjölbýli á vinsælum stað á Brekkunni.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, baðherbergi, tvö svefnherbergi, geymslu og þvottahús.


Forstofa er með parket á gólfi og sérsmíðuðu opnu fatahengi.
Eldhús hefur verið endurnýjað að fullu og búið er að opna á milli eldhúss og stofu/borðstofu. Þar er parket á gólfi og falleg dökk innrétting ásamt eyju sem snýr að stofu/borðstofu. Öll tæki í eldhúsi eru nýleg m.a. innbyggð uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. 
Stofa/borðstofa er með parket á gólfi. Rúmgott rými með stórum glugga til suðurs, en úr stofu er gengið er út á verönd. 
Svefnherbergi eru tvö í eigninni, bæði með parket á gólfum. Stór fataskápur í hjónaherbergi er laus en getur fylgt eigninni við sölu. 
Baðherbergi hefur verið endurnýjað að fullu. Þar eru flísar á gólfum og baðplötur á veggjum, falleg, dökk innrétting, upphengt salerni og sturta.
Þvottahús er inn af baðherbergi. Þar eru flísar á gólfi og hvít innrétting með plássi fyrir þvottavél í vinnuhæð. Einnig er pláss fyrir þurrkara í rýminu.
Geymsla er inni í íbúðinni. Þar er parket á gólfi.

- Eldhús endurnýjað 2023
- Baðherbergi endurnýjað 2023
- Gólf flotuð og sett nýtt gólfefni á alla íbúðina 2023
- Ný rafmagnstafla 2023
- Nýjar rúður eru í stofuglugga, svalahurð og hjónaherbergi
- Hluti af plani og stétt fyrir framan eignina endurnýjað 2021
- Frárennslislagnir í sameign endurnýjaðar 2021
- Bílastæði við inngang fylgir eigninni og þar er búið að koma fyrir rafhleðslustöð

- Vel staðsett eign rétt við skóla og íþróttasvæði
- Góð endaíbúð á rólegum stað

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Dalsgerði 7, 600 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina