Geirþrúðarhagi 4A 202

600 Akureyri
1
1
1
41 m²
39.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
  • Stærð 41 fm
  • Herbergi 1
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2020
  • Brunabótamat 30.000.000
  • Fasteignamat 36.300.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Geirþrúðarhagi 4A íbúð 202 - Björt og vel skipulögð 41 fm. studióíbúð á 2. hæð með sér inngangi í nýlegu fjölbýlishúsi í Hagahverfi.
Eignin skiptist í alrými með eldhúsi, stofu og svefnrými sem er skermað af með léttum vegg, baðherbergi og geymslu.


Eldhús/Stofa er með parket á gólfum. Dökk innrétting er í eldhúsi með innbyggðum ísskáp, flísum á milli skápa, helluborði og bakaraofni.
Úr stofu er gengið út á svalir til suðurs með góðu útsýni.
Inn af stofu er svefnrými sem er skermað af með léttum vegg. Þar er góður fataskápur.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er hvít innrétting og speglaskápur. Innréttingin er með vaski og plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagður sturtuklefi og vegghengt salerni.
Inni í íbúðinni er lítil geymsla með hillum.

- Studio íbúð sem er afar vel skipulögð.
- Vandaðar innréttingar.
- Vinsæl staðsetning í Hagahverfi.
- Tengi fyrir rafbíl við bílastæði.
- Eignin er í útleigu og stendur kaupanda til boða að taka við leigusamningnum ef vilji er fyrir því. 

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Geirþrúðarhagi 4A 202, 600 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina