Jóninnuhagi 2 203

600 Akureyri
3
1
4
86 m²
72.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
  • Stærð 86 fm
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2021
  • Brunabótamat 56.800.000
  • Fasteignamat 59.800.000
Opið hús: 22. júní 2026 kl. 16:15 til 16:45.

Opið hús: Jóninnuhagi 2 203, 600 Akureyri, Íbúð merkt: 01 02 03. Eignin verður sýnd mánudaginn 22. júní 2026 milli kl. 16:15 og kl. 16:45.

Kasa fasteignir 461-2010.

Jóninnuhagi 2 íbúð 203 - Falleg og vel skipulögð 4 herbergja 86.8 fm íbúð með sér inngangi á efri hæð í vesturenda fjölbýlishúsi syðst í Hagahverfi. Frábært útsýni er úr eigninni!

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu.


Forstofa og gangur: Eru með ljósu harðparketi á gólfi og svörtu opnu fatahengi með skúffu og led baklýsingu.
Eldhús: Er með vandaðri L-laga svartri innréttingu með grárri borðplötu og svörtum vask. Mjúklokun er á skúffum og skápum. Uppþvottavél og ísskápur með frysti eru innbyggð í innréttingu og fylgja með við sölu eignar.
Stofa og eldhús: Eru saman í opnu rými með ljósu harðparketi á gólfi, gluggar til tveggja átta og rennihurð út á steyptar suður svalir með frábæru útsýni til fjalla.
Hjónaherbergi: Er með ljósu harðparketi á gólfi og svörtum fataskáp.
Barnaherbergi: Eru tvö, bæði með ljósu harðparketi á gólfi og svörtum fataskápum.
Baðherbergi: Er með gráum flísum á gólfi og hluta veggja, svartri innréttingu og speglaskáp, upphengdu salerni og walk-in sturtu. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. 
Geymsla: Sér geymsla fylgir íbúðinni og er hún á sömu hæð og íbúðin. Geymslan er skráð 5,3 fm.

- Fallegt útsýni er úr íbúðinni.
- Vandaðar innréttingar frá GKS, svartar plastlagðar, Nero oak.
- Hvítar innihurðar.
- Innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja með við sölu eignar.
- Hljóðdempandi plötur í öllum loftum íbúðar nema baðherbergi.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Jóninnuhagi 2 203, 600 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina