Smárahlíð 22 F

603 Akureyri
2
1
3
92 m²
56.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
  • Stærð 92 fm
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1977
  • Brunabótamat 51.400.000
  • Fasteignamat 47.400.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Smárahlíð 22 F - Falleg, rúmgóð og mikið uppgerð 3 herbergja 92,4 fm íbúð á þriðju ( efstu ) hæð í vel viðhöldnu fjölbýli rétt við Glerárskóla og íþróttasvæði Þórs. Búið er að endurnýja eldhús, þvottahús, baðherbergi, gólfefni og innihurðar á síðustu árum sem og gler og gluggalista og yfirfara þak og fleira. Skemmtileg eign með frábæru útsýni.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þvottahús, hol, baðherbergi og tvö svefnherbergi ásamt sér geymslu í sameign.


Forstofa: Er með parketi á gólfi.
Eldhús: Dökk rúmgóð innrétting með góðu skápa og skúffuplássi, dökk borðplata með helluborði og vaski. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Bakara- og combiofn í vinnuhæð. Parket á gólfi.
Þvottahús: Er inn af eldhúsi, þar er hvít innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Bekkplata með vaski. Rúmgott rými sem var áður tvískipt sem þvottahús og geymsla. Flísar á gólfi.
Stofa: Er nokkuð rúmgóð og nýtist sem sjónvarpsstofa og borðstofa. Parket er á gólfum. Gengið er út á suður svalir úr stofu með frábæru útsýni yfir íþróttasvæði þórs og til fjalla.
Hol: Rúmgott hol er í eigninni, þar er parket á gólfi.
Baðherbergi: Var gert upp fyrir einhverjum árum. Þar eru flísar í hólf og gólf. Hvít innrétting með skúffum og efriskápum. Vegghengt salerni. Baðkar með sturtutækum og glervæng. Handklæðaofn.
Svefnherbergi: Eru tvö í eigninni, bæði nokkuð rúmgóð og eru með fataskápum og parketi á gólfi.
Geymsla: Sér geymsla er í sameign.

Árið 2020 var:
- Gólf flotað og parket sett á.
- Skipt um allar innihurðir.
- Eldhús endurnýjað.
- Þvottahús endurnýjað og stækkað inn í geymslu.
- Rafmagns tenglar og rofar endurnýjað.

Viðhald á húsinu:
- Búið er að endurnýja bílaplan.
- Gler og gluggalistar endurnýjaðir.
- Hús málað fyrir 4 árum.
- Þak yfirfarið og lagað
- Nýr mynd-dyrasími
- Sameign á jarðhæð máluð. 

Annað:
- Ljósleiðari kominn inn og tengdur
- Stutt í leik- og grunnskóla og íþróttasvæði Þórs.
- Sameiginleg hjólageymsla í sameign.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Smárahlíð 22 F, 603 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina