Halldóruhagi 2A 203

600 Akureyri
2
1
3
70 m²
59.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
  • Stærð 70 fm
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2022
  • Brunabótamat 46.250.000
  • Fasteignamat 53.000.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Halldóruhagi 2A, íbúð 203 – Falleg 70,2 fm 2–3ja herbergja íbúð á annarri hæð í litlu fjölbýlishúsi í Hagahverfi á Akureyri. Íbúðin er með sérinngangi og úr stofu er gengið út á suðursvalir. Stutt er í Kjarnaskóg og önnur útivistarsvæði.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Annað svefnherbergjanna er skráð sem geymsla á teikningum.


Forstofa er rúmgóð með harðparketi á gólfi og dökkum fataskáp.
Eldhús er með dökkri innréttingu frá GKS, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Bakarofn er í vinnuhæð.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi. Harðparket er á gólfi í öllu rýminu og úr stofu er gengið út á rúmgóðar suðursvalir.
Svefnherbergi eru bæði með harðparketi á gólfi og góðum, dökkum fataskápum. Minna herbergið er skráð sem geymsla á teikningu en nýtist vel sem þriðja herbergið.
Baðherbergi er með dökkri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Þar er upphengt salerni og sturta með gler skilrúmum. Flísar eru á gólfi og hluta veggja.

- Hljóðvistarplötur eru í loftum.
- Innfelld lýsing í flestum rýmum og Plejd kerfi.
- Gólfhiti er í íbúðinni.
- Lögn er fyrir hleðslustöð við bílastæði.
- Bílastæði og gangstéttir eru steypt eða malbikuð og lóðin er þökulögð.
- Snjóbræðsla er í hluta stéttar við útidyr.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.

Halldóruhagi 2A 203, 600 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina